13.3.2010 | 14:25
Vona að ég líti svona vel út þegar ég verð fertug
|
Páll Óskar varð fangi klámsins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2010 | 22:30
Hver þjóð skilur sínar þarfir best
Ég átti gott samtal við vitra konu varðandi evru og ESB.
Málið er að við erum sjálfbær þjóð á lítilli eyju úti á ballarhafi. Hvernig eiga ríkisbubbar í Brussel að hafa skilning á því ef við verðum fyrir aflabresti og viljum mæta því með því sem við teljum best. Í hvert sinn sem við myndum vilja breyta einhverju í samræmi við breyttar aðstæður yrði það að fara á langan lista ráðamanna í landi sem hafa allt aðrar þarfir en við eyjaskeggjarnir.
Okkar mál færu ekki ofarlega í forgagnsröðina, þetta litla þorp úti á ballarhafi. Ja, ekki nema drottnarar okkar sjái fjárhagslegan ávinning fyrir sig og sína. Ó já og við verðum svift fjárræðinu í þokkabót og fáum skömmtunarmiða í líkingu við þá sem eldri kynslóðin man eftir. Allt okkar verður þeirra og okkur ber að hlýða því sem þetta fólk vill gera við auðlindir okkar. Af hverju í ósköpunum er ekki hætt að hugsa um þessi ESB og evrumál og farið að huga að innviðum samfélagsins okkar.
Mig langar ekki í evru, mig langar í réttlæti.
Það ætti að vera forgangsmál hjá ráðamönnum okkar.
|
Svíar snúast gegn evru |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.2.2010 | 23:50
er hún ekki Í Gufunesi?
|
Áburðarverksmiðjan dæmd til að greiða skaðabætur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2010 | 10:56
Töfralausnir stjórnarandstöðunnar
Núú, er þetta ekki svona einfalt eftir allt saman?
Ég fagna því að stjórnarandstaðan hafi verið tekin með í samningaviðræðurnar, þetta fólk hættir þá að básúna alla þessa möguleika sem eru (ekki) í stöðunni. Gerir fólki í kleyft að vinna sína vinnu og eykur skilning meðal þjóðarinnar. Stjórnarandstaðan getur ekki verið á móti lengur því nú situr hún við hlið ríkisstjórnarinnar. Búin að komast að því að þó það séu miklar og góðar hugmyndir uppi á borðum þá þarf 2 til að dansa tangó og það eru fyrst og fremst Bretar og Hollendingar sem stíga á tærnar á Íslendingum, ekki ríkisstjórn Íslands. Spjótunum er kannski beint í réttari átt núna í staðinn fyrir þetta innherjarrifrildi sem er búið að vaða uppi síðan IceSave skandallinn kom upp.
|
Vilja 2,75% álag á vexti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.2.2010 | 20:53
Konur og stúlkubörn eru óæðri, hver vegna ekki að nota þau sem skildi?
Þessi frétt kemur mér því miður ekki á óvart. Nú fyrir stundu kláraði ég að lesa bók sem Jean P. Sasson skrifaði og kom út í íslenskri þýðingu árið 1994. Þessi merkilega bók, Í fjötrum, segir frá lífi konu í Saudi-Arabíu. Því miður hefur ástandið ekki breyst og mun ekki breytast fyrr en í fulla hnefana.
Þar, eins og talibanar boða, ríkir ofræði karlmannsins. Konan fær ekki að fara út úr húsi nema bera blæju. Fæðing þeirra og dauði er svo ómerkilegur að það er ekki skráð í bækur. Stúlkubörn fá aðeins að lifa ef karlmanninum sýnist svo. Allt gengur út á að eignast sem flesta drengi sem geta haldið kúguninni áfram. Ef konu er nauðgað er hún hóra og grýtt til bana. Karlmaðurinn fær kannski orð í eyra.
Konan er hulin til að karlmenn geti haldið betur vörð um kynkvöt hennar. Síðan kaupa þeir stúlkubörn af fátæku fólki og hlæja á meðan þeir skemmta sér. Þeir eiga margar konur og óteljandi hjákonur, samt er það konan sem ber ábyrgð á lostanum.
Ég ætla að vitna orðrétt í Bókarauka B sem fjallar um lög í Saudi-Arabíu:
Hvers vegna er konum óheimilt að bera vitni í glæpamálum
Gefnar eru upp fjórar ástæður fyrir því að vitnisburður kvenna gildir ekki fyrir dómstólum í Saudi-Arabíu.
1. Konur er meiri tilfinningaverur en karlmenn og tilfinningasemin getur brenglað vitnisburð þeirra.
2. Konur eru ekki þátttakendur í opinberu lífi og hafa því ekki skilning á því sem ber fyrir augu þeirra.
3. Konur eru undir yfirstjórn karlmanna sem Allah hefur ákvarðað að séu þeim æðri; vitnisburður kvenna fer eftir því hvað síðasti karlmaður sagði þeim.
4. Konur eru gleymnar og ekki hægt að treysta vitnisburði þeirra.
Ég mæli með því að allir lesi þessa bók og geri það sem í þeirra valdi stendur til að uppræta kúgun og spillingu með fræðslu og réttlætisvitund.
Það sem þú vilt að aðrir gjöri yður skalt þú þeim gjöra. Kannski má fella þessa menn á eigin bragði með því að benda á staði í kóraninum. Hinsvegar er ég þeirrar skoðunar að það sé fátt hættulegra en fólk sem trúir í blindni á orð annarra. Sérstaklega orð sem voru skrifuð árið 650 og túlkuð af karlrembum árið 1744 sem bjuggu til grimmilegt refsingakerfi.
|
Skýla sér bak við óbreytta borgara |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2010 | 19:32
Meira svona :)
Þetta er svo krúttleg frétt að ég vildi óska að fleiri tækju sig saman um að gera eitthvað í þessum anda. Ég vona að allir leggi sitt af mörkum við að brosa framan í náungann, hvort sem þið eruð í Mosfellsbæ eða ekki.
Hér er bros til ykkar sem eru að lesa 
|
Íslandsmet í hópfaðmlagi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2010 | 00:38
Spilaborgirnar hrynja
Þeir sem einblýna á græðgi fyrir sína hönd geta greinilega strandað gamalgrónum fyrirtækjum sem eitt sinn höfðu langtímamarkmið að leiðarljósi. Hálfur milljarður er ekkert miðað við það sem aðrir skulda. Maður er eiginlega bara dofinn yfir upphæðum sem eru mörgum núllum fyrir ofan það sem maður hefur á milli handanna allt lífið.
Loftbóluupphæð byggð í skýjahöll sem einhvern vegin náði að verða að veruleika þó þetta gæti engan vegin staðist. Það er hægt að láta allar steypur ganga upp í exel og margir létu heillast af jakkafataklæddu fólki sem vann við að sannfæra fólk um að þetta væri eðlilegt. Hvernig í ósköpunum var hægt að komast upp með svona vinnubrögð? Það sem meira skiptir - hvernig komum við í veg fyrir að svona geti komið fyrir aftur.
Sölvi Tryggvason er með marga áhugaverða pistla sem ég mæli með
http://www.pressan.is/spjallidmedsolva
- hann nefnir m.a. siðblindu og ég er sannfærð um að hún spili stóran þátt í hruninu.
Margir af þessum mönnum kunna ekki að skammast sín og því verða að vera til lög sem halda aftur af þeim.
|
A. Karlsson gjaldþrota |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2010 | 09:29
Viðbjóður. Hvað með karlkynið?
Það er fáránlegt að í upplýstum heimi skuli svona ennþá gerast. Foreldrar stúlkunnar... mamman var með í þessu. Þetta minnir á mæðurnar sem halda dætrun sínum meðan einhver ógeðiskuklari kemur með ryðgað rakblað til að skera burt snípinn.
Konur fá ekki að fara í skóla og eru grýttar fyrir það eitt að horfa í áttina til karlmanna. Ég get ekki að því gert að verða reið yfir þeim órétti sem yfir 50% jarðarbúa eru beittir, bara af því að þær fæddust ekki með typpi. Ef talibanar fá sínu framgengt verður þú að geta safnað síðu skeggi ef þú átt að eiga þér viðreisnar von.
|
16 ára stúlka grafin lifandi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
27.1.2010 | 12:10
Þó fyrr hefði verið
Ég geri mér fulla grein fyrir því að það þarf að vinna grunnrannsókn áður en húsleit er gerð í þeim fyrirtækjum sem hafa óhreint mjöl í pokahorninu. En aðgerðir fárra orsökuðu þjóðargjaldþrot og mikilvægt að afla allra gagna strax svo hægt sé að leitast við að koma í veg fyrir að svona geti gerst aftur.
Þetta er ekki atburður sem hafði áhrif á nokkur fyrirtæki - þjóðin líður fyrir mistök aðila sem flestir tengjast innbyrgðis. Lokuð klíka sem fáir hafa aðgang að. Þau munu ekki deila upplýsingum með alþýðunni nema þær séu togaðar út með valdi?
Hversu miklu hafa forsvarsmenn þessara fyrirtækja náð að stinga undan frá þeim tíma sem liðinn er frá hruninu? Þau vita að röðin kemur að þeim og því hljóta þau að gera allt sem þeir geta til að fela slóðina. Ég skil ekki af hverju þau, sem greinilega komu landinu á kúpuna, voru ekki kyrrsett strax og eigur þeirra settar undir smásjá. Getur einhver sagt mér það?
|
Leit í sumarhúsi, á heimili og í skemmu bræðranna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2010 | 20:40
10 góðar ástæður
Hvernig væri að stjórnaliðar myndu skrifa niður 5 góðar ástæður til að samþykkja IceSave og stjórnarandsæðingar kæmu með 5 góðar ástæður til að hafa IceSave.
Skýr og skorinort sjónarmið sem yrðu aðgengileg á netinu. Þetta myndi hjálpa heilmörgum að ákveða hvernig þeir haga atkvæði sínu í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Það er fullt af fólki sem hefur ekki tíma til að lesa allt sem skrifað er um IceSave, en myndi gefa sér tíma til að lesa stutt yfirgrip í líkingu við þetta.
Þá finnst mér einnig mikilvægt að þar sem hægt væri að nálgast þessar ástæður væri tengill inn á lögin sjálf og aðrar upplýsingar um þá spurningu sem kjósendur eru beðnir um að svara.
Með von um að stjórnmálamenn séu að hlusta og grípi til aðgerða svo við eigum betri möguleika á að fá farsæla niðurstöðu í málið.
|
Eðlilegt að undirbúa viðræður |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


andrigeir
taoistinn
mosi
ingagm
pallvil
hafstein
fullvalda
siggi-hrellir
icekeiko
tbs