Kristbjörg Erla Hreinsdóttir

Kvöldbænin mín

Góðu öfl, þið sem heyrið í mér, heyrið mína bæn.
Takk fyrir daginn og hjálpið mér að njóta morgundagsins.
Haldið verndarhendi yfir mér, ástvinum mínum og fjölskyldu.
Sendið lífskraft, lífsvilja og lífshamingju til allra þeirra sem þurfa þess með.
Hjálpið þeim sem vilja vel til að láta gott af sér leiða
og setjið hindranir á vegi þeirra sem vilja öðrum illt, vitandi eða óafvitandi.
Ég óska ykkur allra þeirra krafta sem mögulega geta hjálpað ykkur
til þess að gera það sem gera þarf til að heimurinn verði betri.
Hjálpið mér að verða betri manneskja, rata rétta leið og segja það sem á við hverju sinni.
Verði ykkar vilji,
að eilífu,
amen

 

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Kristbjörg Erla Hreinsdóttir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband